21.9.2007 | 13:03
Allt er nú til
Jæja þá er ég nú farin að blogga og allt Vísi að kenna.
Ég efast hins vegar um að ég komi til með að skrifa mikið á þetta blogg mitt. En ég var búin að fá áskoranir frá þeim Guðsteini og Önnu Karen og það var erfitt að standast það, þannig að það er líka honum að kenna að ég gerði það sem ég var ráðin í að gera aldrei.
Sem sagt blogga. Guðsteinn þú hefur mikið á samviskunni.
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Flott þetta flower! :) Það verður gaman að fylgjast með þér !
Guðsteinn Haukur Barkarson, 21.9.2007 kl. 13:33
ég segi það, fólk sem hefur eitthvað að segja á að tjá sig, ekki veitir af
halkatla, 21.9.2007 kl. 15:45
Þakka ykkur fyrir það Guðsteinn og Anna Karen.
Nú kann ég hins vegar lítið á þetta dót þó að ég hafi slampast á rétt þegar ég var að skrá mig. Ég kem hvergi fram t.d, en læt mér það í léttu rúmi liggja í bili þar sem ég er ekki gefin fyrir það að láta mikið á mér bera hehe
Það er hins vegar gaman að halda sambandi við ykkur ef svo fer að vísir hafi gefist upp á gagnrýni og lokað spjallinu (aumingjar). Þó að ég reyndar haldi sambandi við Guðstein í eigin persónu og hafi hitt hann. Munnsöfnuðurinn verður bara endurreistur á mogganum hahaha.
Flower, 21.9.2007 kl. 15:59
Blessuð vertu flower, Faith er líka vonin tíhí sem ég vona svo sannarlega mun sjá þig hér og þú lætur í þér heyra.
Linda, 21.9.2007 kl. 16:14
Vá takk fyrir góðar viðtökur öll!
Flower, 21.9.2007 kl. 16:21
Á ég ekki upp á pallborðið hjá þér, Flower?
Linda, ert þú Faith?
Vendetta, 21.9.2007 kl. 20:54
Jú að sjálfsögðu Vendetta. Bara ekki að tala um nekt á mínu bloggi þá læt ég henda þér út hehe
Flower, 21.9.2007 kl. 21:08
gangi þér vel að blogga og velkomin í bloggheim !
AlheimsLjós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 22:20
Já Vendetta ég er Faith
Linda, 21.9.2007 kl. 22:38
Hvað á ég þá að tala um, Flower? Nýjustu fatalínuna og andúð mína á henni?
Vendetta, 22.9.2007 kl. 21:31
Já Vendetta, það er allavega andstæða nektar Þú getur líka talað um baðföt þá er kominn millivegur. Þetta má alveg leysa held ég
Flower, 22.9.2007 kl. 22:14
Jæja, gott er að sjá þetta. Faith eða Linda mín er búin að opinbera sig, og nú vita allir að ég og Flower þekkjumst.
Eitt skulið þið vita um flower okkar, hún er jafn sönn í orðum og í persónu. Hún og Linda hafa verið mér ómetanlegur stuðningur æi gegnum "vísis árin". Eins er auðvitað með Önnu Karen. Rosalega er ég heppinn að vera umkringdur svona góðu kvenfólki!
Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.9.2007 kl. 21:02
Takk fyrir þessi hlýju orð í minn garð Haukur, þú ert líka stuðningur fyirir mig bara svo að þú vitir það Þegar ég kynntist þér kom sprengja í mitt trúarlíf
Flower, 24.9.2007 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.